IN PARADISUM — TÓNLEIKAR SCHOLA CANTORUM Í HÁTEIGSKIRKJU SUNNUDAGINN 26. SEPT. 2021 KL. 17

Hafliði Hallgrímsson
Hafliði Hallgrímsson tónskáld áttræður – Kveðja frá Listvinafélaginu í Reykjavík
18/09/2021
Jólaóratía 2021
Jólaóratórían eftir J.S. Bach í Eldborgarsal Hörpu 1. sunnudag í aðventu 28. nóv. 2021 kl. 17
15/10/2021
Sýna allt

IN PARADISUM — TÓNLEIKAR SCHOLA CANTORUM Í HÁTEIGSKIRKJU SUNNUDAGINN 26. SEPT. 2021 KL. 17

Kammerkórinn Schola Cantorum

Kammerkórinn Schola Cantorum, sem fagnar 25 ára afmæli sínu á þessu ári, heldur tónleika í Háteigskirkju í Reykjavík sunnudaginn 26. september 2021 kl. 17. Er það í fyrsta sinn sem þessi viðurkenndi kór heldur tónleika í fögrum hljómi Háteigskirkju og eru tónleikarnir í samvinnu við Listvinafélagið í Reykjavík.

Á efnisskránni eru hrífandi kórverk eftir íslenska og erlenda höfunda, m.a. Eric Whitacre, Ola Gjeilo, Hauk Tómasson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og kórfélagana Auði Guðjohnsen og Björn Thorarensen, auk þess sem kórinn flytur áhrifamikla útsetningu kórfélagans Hafsteins Þórólfssonar á Sofðu unga ástin mín.

Hljóðritun fyrir geisladisk með sömu efnisskrá fer fram í Skálholtsdómkirkju dagana fyrir tónleikana, en diskurinn verður gefinn út af hinu virta sænska útgáfufyrirtæki BIS.

Schola cantorum hefur í fjöldamörg ár sungið tónleika í byrjun nóvember kringum Allra sálna messu þegar látinna er minnst um allan heim, en tónleikarnir í ár, sem eru með svipaðri efnisskrá, eru haldnir nú í septemberlok í tengslum við geisladiskaupptökuna.

Tónlistin túlkar kyrrð og fegurð sem birtist í ýmsum þekktum textum kirkjunnar m.a. Ave verum corpus, Sanctus, In Paradisum o.fl.

Sjá efnisskrá að neðan.

Hörður Áskelsson

Hörður Áskelsson

Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.

Kammerkórinn Schola Cantorum var stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni kantor í félagi við nokkra meðlimi úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Allar götur síðan hefur kórinn gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi. Frumflutningur á verkum íslenskra tónskálda hefur jafnan vegið þungt á efnisskrá kórsins en einnig fjölröddun endurreisnartímans auk þess sem Schola Cantorum hefur flutt ýmis stórvirki barokksins ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Reykjavík. Schola Cantorum hefur komið fram á tónleikum víðsvegar um heim. Vorið 2017 söng kórinn m.a. ferna tónleika í boði Fílharmóníusveitar Los Angeles í Walt Disney Hall á Reykjavík Festival. Í mars 2018 frumflutti Schola Cantorum með Sinfóníuhljómsveit Íslands verkið Eddu II eftir Jón Leifs. Verkið var hljóðritað af sænska útgáfufyrirtækinu BIS sem þáttur í heildarútgáfu fyrirtækisins á hljómsveitarverkum tónskáldsins.

Kórinn kemur víðar við sögu í þeirri útgáfu. Schola Cantorum sendi frá sér diskinn Meditatio, einnig í samstarfi við BIS, árið 2016 þar sem hljóma margar áhrifaríkar tónsmíðar kórtónbókmenntanna frá 20. og 21. öld, íslenskar jafnt sem erlendar. Hefur diskurinn hlotið lofsamlegar viðtökur víða um heim. Schola Cantorum hefur unnið með fjölmörgum listamönnum við tónleikahald og upptökur. Má þar nefna Björk, Sigur Rós, Jóhann Jóhannson, Kjartan Sveinsson, Tim Hecker og sænska dúettinn Wildbirds and Peacedrums. Þá má geta þess að söngur kórsins gegnir veigamiklu hlutverki í tónlist á hinum vinsæla tölvuleik God of War sem Sony gaf út 2018 og fékk Bafta verðlaunin. Schola Cantorum var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og valinn tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaunum 2017.

Fjölmargir spennandi viðburðir eru framundan hjá Schola Cantorum, m.a. upptökur á jóladiski með íslenskri jólatónlist sem BIS gefur út, jólatónleikar í Kristskirkju 15. des. nk., tónleikar á Alþjóðlegu kirkjutónlistarhátíðinni í Osló í mars 2022, Listahátíð í Reykjavík í júní 2022, tónlistarhátíð í Normandí í júlí 2022 auk fleiri hátíða hérlendis og erlendis.

Efnisskrá:

1. Elegy — Daniel Elder (f. 1986)/Daniel Adams Butterfield

2. Nú legg ég þér í lófa — Þóra Marteinsdóttir (f. 1978)/J. Hausmann—Sigurbjörn Einarsson

3. Ave verum corpus — Auður Guðjohnsen (f. 1975)/Latneskur trúartexti

4. Vor hinsti dagur — Haukur Tómasson (f. 1960)/Halldór Laxness

5. Lux aeterna — Hreiðar Ingi Þorsteinsson (f. 1978)/Latneskur sálumessutexti

6. Sofðu unga ástin mín — íslenskt þjóðlag, úts. Hafsteinn Þórólfsson (f. 1977)

7. Sanctus: London — Ola Gjeilo (f. 1978)/„Heilagur“ latneskur messutexti

8. Agnus Dei — Björn Thorarensen /„Guðs lamb“ latneskur messutexti

9. Fagurt er í fjörðum — íslenskt þjóðlag, úts. John Hearne (f. 1937) Einsöngur: Rakel Edda Guðmundsdóttir

10. Ubi caritas — Paul Mealor (f. 1975)/Latneskur trúartexti

11. Ave verum corpus — Sigurður Sævarsson (f. 1963)/Latneskur trúartexti

12. In paradisum — Galina Gregorjeva (f. 1962)/Latneskur sálumessutexti

13. Nunc dimittis — Pawel Lukaszewsky (f. 1968)/Lofsöngur Símeons úr Lúkasarguðspjalli

14. In paradisum — Pärt Uusberg (f. 1986)/Latneskur sálumessutexti

15. Sleep — Eric Whitacre (f. 1970)/Charles Anthony Silvestri

 Sjá dreifibréf hér.