Í ANDDYRINU- SÝNING KARLOTTU BLÖNDAL Í FORKIRKJU HALLGRÍMSKIRKJU

Íslensku tónlistarverðlaunin
Kirkjulistahátíð og Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna
11/03/2020
Hallgrímskirkja
Messa með fögrum vor – og sumarsálmum sunnudaginn 17. maí kl. 11- messuhald hefst að nýju í Hallgrímskirkju
15/05/2020

Í ANDDYRINU- SÝNING KARLOTTU BLÖNDAL Í FORKIRKJU HALLGRÍMSKIRKJU

Karlotta Blöndal

Karlotta Blöndal Í ANDDYRINU

8. mars. – 24. maí. 2020 

Myndlistarsýning Karlottu Blöndal, Í anddyrinu, var opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, sunnudaginn 8. mars sl. við messulok.

Hallgrímskirkja anddyri

Sýningin er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og sýningarstjóri er Rósa Gísladóttir.  

Listvinafélagið hvetur gesti til að njóta myndlistarinnar í forkirkjunni, en engir ferðamenn eru nú á ferli og nægt rými til að njóta. Kirkjan er opin kl. 12-15 alla daga nema mánudaga og er aðgangur að sýningunni ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

„Anddyri er sérstakur staður, einskonar staður á undan stað, sem vekur upp spurningar um aðliggjandi rými og hverjir hafi aðgang að þeim vistarverum. Anddyri Hallgrímskirkju er opið þeim sem vilja og þangað streyma inn ferðamenn frá öllum heimshornum. 

Fyrir vorsýningu Hallgrímskirkju voru valin verk sem mynda samtal við þetta sérstaka rými. Sum verkin hafa verið sýnd áður, önnur eru ný eða áður ósýnd en öll koma hér saman líkt og ferðalangar. Hvert verk er stef úr stærra samhengi, frá öðrum tíma, sem fær að mynda nýja heild, eins og lína í ljóði sem finnur sér stað í nýju ljóði árum síðar.

Fáninn sem rammi utan um innri eða ytri sögn er gegnumgangandi vísun í á sýningunni. Sýningin opnaði 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, hún var opin á pálmasunnudag, og verður opin á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og einnig á baráttudegi verkalýðsins 1. maí, og er opin allt fram að uppstigningardegi eða lengur. 

Allir þessir dagar munu lita skynjun og túlkun á verkunum, þau eflast með þeim sem ferðast um rýmið á hverjum tíma, straumi fólks til og frá, hreyfingum ytra og innra“. 

Karlotta Blöndal

Karlotta Blöndal

Karlotta Blöndal býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk MFA-gráðu frá Listaháskólanum í Malmö, Háskólanum í Lundi, 2002. Hún hefur sýnt víða, hér á landi og utan landsteinanna auk þess unnið að ýmsum verkefnum og þverfaglegum samstörfum í myndlist.

Verk hennar eru unnin í margs konar miðla; teikningu, málverk, innsetningar, prent og gjörninga þar sem hún skoðar hugmyndir um víddir, tengslin milli hins efnislega og andlega og mörkin milli þess hlutbundna og óhlutbundna. Verkin eru yfirleitt unnin eða sett upp með samhengið og sýningarstaðinn í huga. 

Heimasíða: www.karlottablondal.net