HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU á föstudaginn langa kl. 12-17

Íslensku tónlistarverðlaunin
ÓRATÓRÍAN GUÐSPJALL MARÍU MEÐ 2 TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNANNA 2023
22/03/2023
Mótettukórinn
VORTÓNLEIKAR MÓTETTUKÓRSINS í Fella- og Hólakirkju Uppstigningadag fimmtudaginn 18. maí 2023 kl. 20
15/05/2023

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU á föstudaginn langa kl. 12-17

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU á föstudaginn langa kl. 12-17

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU – NORÐURBRYGGJU á 1. hæð fyrir framan Kaldalón.

Föstudaginn langa 7. apríl 2023 kl. 12–17

LESARI: Halldór Hauksson

TÓNLISTARFLYTJENDUR:

Jón Þorsteinn Reynisson, harmónikka – einleikur

Lilja Dögg Gunnarsdóttir, altsöngkona – einsöngur

Halldór Hauksson, píanó – einleikur

Félagar úr Mótettukórnum

Listvinafélagið í Reykjavík stendur fyrir heildarlestri Passíusálmanna í samvinnu við Hörpu, en félagið skipulagði Passíusálmalesturinn í Hallgrímskirkju í Reykjavík um 30 ára skeið með mjög breiðum hópi lesara. Sálmarnir voru lesnir í fyrsta sinn í Hörpu á vegum Listvinafélagsins á síðasta ári og vakti viðburðurinn mikla athygli.

Passíusálmarnir eru höfuðverk séra Hallgríms Péturssonar (1614–1674) og meðal merkustu bókmenntaverka Íslendinga. Þessi magnaða túlkun skáldprestsins á „historíu pínunnar og dauðans Drottins vors Jesú Kristí“ í fimmtíu sálmum var fyrst prentuð árið 1666 og öðlaðist fljótt algjöra sérstöðu í trúar- og menningarlífi þjóðarinnar. Kynslóðir Íslendinga kunnu sálmana meira og minna utan að og þeir voru lesnir og sungnir í kirkjum og á heimilum um allt land á föstunni. Engin bók hefur oftar verið prentuð á Íslandi og fá listaverk hafa markað jafn djúp spor í þjóðarsálina.

Halldór Hauksson hefur flutt Passíusálmana í heild opinberlega á hverju ári síðan 2014. Hann segir: „Það gefur mér afar mikið að lesa þessa sálma á föstunni og ég veit að það á við um mjög marga. Stundum spyr ég mig hvernig á því standi að trúarlegur kveðskapur frá 17. öld skuli enn eiga svona mikinn hljómgrunn meðal Íslendinga. Ég held að svarið sé að þrátt fyrir að heimsmynd og lífsvenjur breytist í aldanna rás þá er kjarninn í mannlegri tilveru alltaf sá sami. Fáir hafa túlkað og tjáð sorg og kvíða á jafn djúpsæjan og persónulegan hátt á íslenska tungu og Hallgrímur, en í Passíusálmunum er sömuleiðis að finna ótal óviðjanleg tilbrigði við stefin ást og þakklæti og hina eilífu von um fagra framtíð.“

Dagskráin fer fram á NORÐURBRYGGJU fyrir utan Kaldalón á 1. hæð Hörpu.

Lögð er áhersla á óþvingað flæði þannig að gestir geta komið og farið að vild og tónlistaratriði verða nokkrum sinnum milli lestra yfir daginn.

Veitingastaðurinn Hnoss á jarðhæð Hörpu verður opinn og geta gestir fengið sér hressingu í tengslum við heimsóknina í Hörpu. Félagar í Listvinafélaginu njóta 10% afsláttar á Hnoss.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

LISTVINAFÉLAGIÐ Í REYKJAVÍK 41. STARFSÁR- HARPA TÓNLISTARHÚS

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU á föstudaginn langa kl. 12-17