Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju heldur tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri fimmtudaginn 9. ágúst

Elke Eckerstorfer
ELKE ECKERSTORFER organisti St. Augustin í Vínarborg á tónleikum helgarinnar 4. og 5. ágúst
02/08/2018
Hans-Ola Ericsson
HANS-OLA ERICSSON organisti/prófessor við McGIll-háskólann í Montréal á tónleikum helgarinnar 11. og 12. ágúst
07/08/2018
Sýna allt

Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju heldur tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri fimmtudaginn 9. ágúst

Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju

Friðrik Vignir Stefánsson lauk kantors- og einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1987. Hann stundaði svo framhaldsnám á orgel veturinn 2005 við Konunglega danska tónlistarháskólann. Í átján ár gegndi hann stöðu organista og kórstjóra við Grundarfjarðarkirkju. Friðrik hefur sótt orgelnámskeið af ýmsu tagi erlendis og hérlendis. Hann hefur einnig haldið fjölda tónleika innanlands og utan. Síðan 2007 hefur Friðrik Vignir starfað sem organisti og tónlistarstjóri Seltjarnarneskirkju.

Fimmtudaginn 9. ágúst kl. 12: Friðrik Vignir Stefánsson leikur verk eftir G. Böhm, L. Marchand og Bach (Prelúdía og fúga í d-moll). Miðaverð kr. 2.000.

Efnisskrá:
Georg Böhm 1661‒1733 Prelúdía og fúga í C-dúr
Vater unser im Himmelreich

Louis Marchand 1669‒1732 Cinquième Livre d‘Orgue (Fimmta orgelbókin)
1. Basse de Cromorne ou de Trompette
2. Duo
4. Plein-Jeu
6. Basse de Trompette ou de Cromorne
7. Récit de tierce en taille

Johann Sebastian Bach 1685‒1750 Prelúdía og fúga í d-moll, BWV 539

Miðasala í kirkjunni opnar klukkutíma fyrir tónleikana en einnig er hægt að kaupa miða á www.midi.is