Mótettukórinn mun syngja inn sumarið á vortónleikum sínum í Fella-og Hólakirkju á uppstigningardag, 18. maí, kl. 20.
Á efnisskránni verða undurfalleg verk, þar á meðal eftir Bruckner, Brahms, Grieg og Rachmaninoff í bland við norræn sumarljóð. Einnig mun kórinn flytja nokkur af uppáhaldslögum sínum gegnum tíðina.
Stjórnandi á tónleikunum er Bjarni Frímann Bjarnason, sem leysir af Hörð Áskelsson stjórnanda Mótettukórsins. Bjarni hefur m.a. stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Caput og Kammersveitinni í Bergen. Nýverið stjórnaði hann tónleikum Bjarkar í Japan og á tónlistarhátíðinni Coachella í Los Angeles.
Mótettukórinn hefur um áratuga skeið verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og hefur kórinn farið í margar tónleikaferðir og sungið í helstu dómkirkjum Evrópu, auk þess sem hann hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum og unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum. Árið 2021 hlaut Mótettukórinn Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarflytjandi ársins í Sígildri-og samtímatónlist þar sem hann hefur áður verið tilnefndur nokkrum sinnum.
Efnisskrá tónleikanna:
Bruckner: Os Justi
Rachmaninov: Bogoroditse Deva
Rachmaninov: Svete Tihyi
Pearsall: Lay a Garland
Wikander: Kung Liljekonvalje
Petersson-Berger: Som stjärnorna på himmelen
Grieg: Ave maris stella
Jón Nordal: Heilræðavísur
Ísl/Árni Harðarson: Tíminn líður
Brahms: Warum?
Alfvén: Ut i vår hage
Rheinberger: Abendlied
Almennt miðaverð á tónleikana: 4.500 kr.
Listvinir, eldriborgarar og börn: 2.250 kr.
Miðasala á tix.is