Heildarlestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar í tónlistarhúsinu HÖRPU – Hörpuhorni á 2. hæð

JÓLIN MEÐ MÓTETTUKÓRNUM- Jólatónleikar Mótettukórsins í Fríkirkjunni í Reykjavík 12. og 13. desember kl. 20
JÓLIN MEÐ MÓTETTUKÓRNUM- Jólatónleikar Mótettukórsins í Fríkirkjunni í Reykjavík 12. og 13. desember kl. 20
08/12/2023

Heildarlestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar í tónlistarhúsinu HÖRPU – Hörpuhorni á 2. hæð

Heildarlestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar

Föstudaginn langa 29. mars 2024 kl. 12–17:30

LESARI: Halldór Hauksson

TÓNLISTARFLYTJENDUR: Meðlimir úr barokkhópnum Consortico (12-14.30) og kammerkórnum Schola Cantorum (15-17.30)

Listvinafélagið í Reykjavík stendur fyrir heildarlestri Passíusálmanna í samvinnu við Hörpu í þriðja sinn, en félagið skipulagði Passíusálmalesturinn í Hallgrímskirkju í Reykjavík um 30 ára skeið.

Passíusálmarnir eru höfuðverk séra Hallgríms Péturssonar (1614–1674) og meðal merkustu bókmenntaverka Íslendinga.

Heildarlestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar í tónlistarhúsinu HÖRPU – Hörpuhorni á 2. hæð

Lögð er áhersla á óþvingað flæði í Hörpuhorni þannig að gestir geti komið og farið að vild. Eftir hverja fimm sálma munu félagar úr Mótettukórnum syngja lög við sálma séra Hallgríms og sálmalagaútsetningar eftir Johann Sebastian Bach.

Veitingastaðurinn Hnoss á jarðhæð Hörpu verður opinn og geta gestir fengið sér hressingu í tengslum við heimsóknina í Hörpu.

Aðgangur að Passíusálmalestrinum er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Lesið nánari upplýsingar um viðburðinn með því að smella hér.