Hans-Ola Ericsson lærði orgelleik og tónsmíðar í Stokkhólmi, Freiburg, Bandaríkjunum og Feneyjum. Árið 1989 var hann skipaður prófessor í kirkjutónlist og orgelleik við tónlistardeild Háskólans í Piteå/Luleå í Svíþjóð. Árið 1996 varð hann fastur gestaprófessor í Bremen og árið 2011 var hann skipaður orgelprófessor við McGill háskólann í Montréal í Kanada.
Hans-Ola Ericsson hefur komið fram á tónleikum víða um heim og unnið með mörgum þekktum tónskáldum við túlkun verka þeirra, s.s. György Ligeti og Olivier Messiaen. Þá er hann vinsæll dómnefndarmaður í orgelkeppnum.
Laugardaginn 11. ágúst kl. 12 leikur hinn heimsfrægi organisti og prófessor við McGill-háskólann í Montréal, Hans-Ola Ericsson, verk eftir O. Lindberg og J.S Bach.
Efnisskrá:
Oskar Lindberg 1887‒1955 Sónata í g-moll, 1924
I Marcia elegiaca
II Adagio
III Alla Sarabanda
IV Finale: Allegro con brio
Johann Sebastian Bach 1685‒1750
O Mensch, bewein‘ dein Sünde gross, BWV 622
Prelúdía og fúga í h-moll, BWV 544
Sunnudaginn 5. ágúst kl. 17 leikur Hans-Ola Ericsson verk eftir J.S Bach, R. Wagner (Pílagrímakórinn úr Tannhäuser) og F. Liszt. Miðaverð kr. 2.500
Efnisskrá:
Johann Sebastian Bach 1685‒1750
Einleitung und Fuge /Inngangur og fúga
Umr. Franz Liszt 1811‒1886 úr kantötunni Ich hatte
viel Bekümmernis, BWV 21
Richard Wagner 1813‒1883 Pílagrímakórinn úr Tannhäuser
Umr. Franz Liszt
Johann Sebastian Bach
Chromatische Fantasie, BWV 903
Umr. Max Reger 1873‒1916
Johann Sebastian Bach Lokakafli Matteusarpassíu
Umr. Charles-Marie Widor 1844‒1937
Franz Liszt Fantasía og fúga um kóralinn
Ad nos, ad salutarem undam, 1850
Miðar eru seldir í kirkjunni klukkutíma fyrir tónleikana og á www.midi.is