Mótettukórinn var stofnaður árið 1982 og hefur lengi verið meðal fremstu kóra landsins. Hann var upphaflega stofnaður sem kirkjukór Hallgrímskirkju en hefur frá árinu 2021 starfað á eigin vegum. Hörður Áskelsson var stofnandi kórsins og stjórnandi allt frá upphafi til ársins 2023. Síðan hefur kórinn notið leiðsagnar Bjarna Frímanns Bjarnasonar, Benedikts Kristjánssonar og Stefans Sand.
Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og má þar finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka.
Mótettukórinn hefur farið í margar tónleikaferðir, sungið í helstu dómkirkjum Evrópu og tekið þátt í tónlistarhátíðum á borð við Listahátíðina í Björgvin, Norrænu kirkjutónlistarhátíðina í Gautaborg og Wiener Festwochen í Vínarborg.
Kórinn hefur einnig tekið þátt í erlendum kórakeppnum. Hann vann til verðlauna í Alþjóðlegu kórakeppninni í Cork á Írlandi árið 1996 og í september 2014 vann kórinn til þriggja gullverðlauna í keppninni Cançó Mediterrània á Spáni þar sem kórinn vann einnig Grand Prix-verðlaun sem besti kór keppninnar.
Meðal stórverka sem Mótettukórinn hefur flutt má nefna Messías eftir Georg Friedrich Händel, Matteusarpassíuna, Jóhannesarpassíuna, Jólaóratóríuna og H-moll-messuna eftir Bach, Sálumessu og Messu í c-moll eftir Mozart, sálumessur eftir Duruflé og Fauré, óratóríurnar Elía og Pál postula eftir Mendelssohn, Vesper eftir Rachmaninoff, Messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin og Þýska sálumessu eftir Johannes Brahms.
Kórinn hefur þrisvar verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem flytjandi ársins í flokki sígildrar tónlistar, árið 2012 fyrir flutning á 9. sinfóníu Beethovens, árið 2015 fyrir flutning á óratóríunni Salómon eftir Händel á Kirkjulistahátíð, og seinast árið 2021 þegar hann hlaut verðlaunin fyrir túlkun sína á Jólaóratóríu Bachs í Hörpu. Upptaka frá þeim tónleikum var flutt í jólaútvarpsdagskrá bresku útvarpsstöðvarinnar BBC3 í desember 2022.
Kórinn kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur einnig haldið fjölmarga rómaða tónleika með Alþjóðlegu barokksveitinni í Reykjavík (áður Den Haag).
Mótettukórinn hefur gefið út mikið af efni og hlaut lof erlendra gagnrýnenda fyrir hljóðritun sína á Sálumessu eftir Maurice Duruflé og Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson. Þá hafa komið út plötur hjá sænska útgáfufyrirtækinu BIS þar sem kórinn flytur verk eftir Jón Leifs með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Jólaplötur Mótettukórsins hafa notið mikilla vinsælda enda eru árlegir jólatónleikar kórsins ómissandi þáttur í tónlistarlífi Reykjavíkur á aðventunni. Nálgast má nánast allt útgefið efni kórsins á streymisveitunni Spotify.
Heimasíða: www.motettukor.is
