Hinn fjölhæfi James McVinnie mun á tónleikum sínum leika djarflega blöndu af tónlist frá endurreisnartímanum, Bach, Stravinskí, Vaughan Williams og nýtt verk sem Nico Muhli skrifaði fyrir hann. James McVinnie er vel þekktur bæði sem einleikari og fyrir áhuga sinn á nýsköpun í tónlist. Hann gegndi stöðu aðstoðarorganista við Westminster Abbey 2008–2011 þar sem hann stjórnaði meðal annars hinum heimsfræga kór kirkjunnar og tók þátt í tónlistarflutningi við brúðkaup Vilhjálms prins og Katrínar árið 2011. Áður gegndi hann svipaðri stöðu við Dómkirkjur heilags Páls og Albans og við Clare College í Cambridge þar sem hann lagði stund á tónlistarnám. James hefur leikið inn á geislaplötur með kórtónlist og eldri tónlist (continuo-rödd) og komið fram á flestum barokkhátíðum í Evrópu. Hann er félagi í Bedroom Community Valgeirs Sigurðssonar sem er bæði plötuútgáfa og alþjóðlegur samstarfshópur tónlistarfólks úr ólíkum áttum.
Miðaverð er 2.000 kr. á laugardagstónleikana og 2.500 kr. á sunnudaginn, miðasala á midi.is og við innganginn.
Sjá nánar á listvinafelag.is
Efnisskrá laugardaginn 20. ágúst kl. 12
Toccata in F BWV 540 – J S Bach
Patterns – Nico Muhly
i Move Along
ii Palindromes
iii Similar
iv Very Fast Music
Berceuse & Final úr Eldfuglinum – I Stravinsky
Efnisskrá sunnudaginn 21. ágúst kl. 17
Five Renaissance Dances – Anon
Unter der Linden Grüne – J P Sweelinck
Patterns – Nico Muhly
i Move Along
ii Palindromes
iii Similar
iv Very Fast Music
Prelude & Fugue í e-moll BWV 552 – J S Bach
Romanza úr Sinfóníu nr. 5 – R Vaughan Williams
Berceuse & Final úr Eldfuglinum – I Stravinsky