In Paradisum

Barokkhópurinn BaroqueAros
BAROKKTÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU
03/10/2019
Hallgrímskirkja
Fjölradda tónlist frá endurreisn til rómantíkur
14/11/2019

In Paradisum

Schola Cantorum In Paradisum

In Paradisum er að þessu sinni yfirskrift hinna árlegu tónleika kammerkórsins Schola Cantorum í Hallgrímskirkju í tilefni af Allraheilagramessu. Titillinn er sóttur í heiti eins kafla úr Sálumessu eða Requiem sem ótal stórbrotin tónverk hafa verið samin við.

Á tónleikunum flytur kórinn fjölbreytta blöndu af trúarlegum tónverkum og útsetningum eftir íslenska og erlenda höfunda sem flest eru frá síðari árum. Schola Cantorum heldur áfram á þeirri braut sem mörkuð var með útgáfu hljómdisksins Meditatio sem vakti athygli víða um heim fyrir fágaðan söng og vandaða útgáfu. Verkin sem flutt verða á tónleikunum eru krefjandi en aðgengileg kórtónlist, án undirleiks, þar sem horft er inn á við – og veita innblástur til íhugunar, kyrrðar og minningar sálna sem kvatt hafa jarðvistina.

Stjórnandi er Hörður Áskelsson

Þetta verður áhrifarík, upplífgandi og sálarbætandi tónlistarstund í flutningi eins af bestu kórum Íslands í hinum einstaka hljómi Hallgrímskirkju.

Miðaverð er 4500 kr. og fást miðar á tix.is og í andyri kirkjunnar á tónleikadegi.