Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2015 er hafið

Nýsköpun í Hallgrímskirkju á hátíð heilags anda
22/05/2015
Alþjóðlegt orgelsumar 2015
11/06/2015

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2015 er hafið

Dexter Kennedy

Lettnesk orgeldíva og 24 ára bandarískur orgelsnillingur meðal flytjenda.

Star Wars,  Jón Leifs og nýtt orgelverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur er meðal þess sem prýðir efnisskrá Alþjóðlega orgelsumarsins í Hallgrímskirkju þetta árið. Einnig verður fjöldi sígildra perlna leikinn á hið ómfagra Klais-orgel kirkjunnar, sem er stærsta hljóðfæri landsins og laðar að sér færustu orgelleikara heimsins.

Iveta ApkalnaHaldnir verða tónleikar í hádeginu alla laugardaga og klukkan fimm alla sunnudaga fram til 9. ágúst. Þá verða einnig hádegistónleikar á fimmtudögum á tímabilinu í samvinnu við Félag íslenskra organleikara, en það er á einum þeirra, þann 2. júlí, sem Jónas Þórir, organisti Bústaðakirkju, mun leika kvikmyndatónlist.

Björn Steinar SólbergssoStórstjörnurnar í ár eru að öðrum ólöstuðum þau Iveta Apkalna, heimsþekkt orgeldíva frá Lettlandi sem heldur tónleika helgina 20.-21. júní  og Dexter Kennedy, Bandaríkjamaður sem aðeins 24 ára að aldri vann Alþjóðlegu orgelkeppnina í Chartres 2014, en hann leikur helgina 18. og 19. júlí.

Þá eru enn ónefndir hádegistónleikar kammerkórsins Schola Cantorum, sem eru eins og undanfarin ár á miðvikudögum í sumar.  Schola Cantorum hefur getið sér orð fyrir vandaðan kórsöng og flytur íslenskar og erlendar kórperlur ásamt þjóðlögum í þessari tónleikaröð.

Fyrstu tónleikar sumarsins verða helgina 13.-14. júní en þá leikur Björn Steinar Sólbergsson orgeldagskrá með frönsku yfirbragði.

Listvinum er boðið á alla orgeltónleika sumarsins á Alþjóðlegu orgelsumri og vonum við að þeir sem og aðllir aðrir njóti vel þessarar fjölbreyttu orgeltónlistarveislu.

Pdf - Icon Bæklingur