HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í HÖRPU föstudaginn langa 15. apríl nk. kl 12-17

Tónlistarviðburður ársins- Jólaóratórían eftir J.S. Bach hlýtur tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022
Tónlistarviðburður ársins- Jólaóratórían eftir J.S. Bach hlýtur tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022
30/03/2022
Sýningarleiðsögn Rósu Gísladóttur í Ásmundarsafni fyrir félaga í Listvinafélaginu í Reykjavík
Sýningarleiðsögn Rósu Gísladóttur í Ásmundarsafni fyrir félaga í Listvinafélaginu í Reykjavík 13. mars sl.
11/04/2022

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í HÖRPU föstudaginn langa 15. apríl nk. kl 12-17

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í HÖRPU

LISTVINAFÉLAGIÐ Í REYKJAVÍK 40. STARFSÁR – HARPA TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í tónlistarhúsinu HÖRPU –

Hörpuhorni á 2. hæð

Föstudaginn langa 15. apríl 2022 kl. 12–17

LESARI: Halldór Hauksson

TÓNLISTARFLYTJENDUR: Félagar úr Mótettukórnum og kammerkórnum Schola Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar

Listvinafélagið í Reykjavík, sem í ár fagnar 40 ára afmæli sínu, stendur fyrir heildarlestri Passíusálmanna í samvinnu við Hörpu, en félagið skipulagði Passíusálmalesturinn í Hallgrímskirkju í Reykjavík um 30 ára skeið með mjög breiðum hópi lesara.

Passíusálmarnir eru höfuðverk séra Hallgríms Péturssonar (1614–1674) og meðal merkustu bókmenntaverka Íslendinga. Þessi magnaða túlkun skáldprestsins á „historíu pínunnar og dauðans Drottins vors Jesú Kristí“ í fimmtíu sálmum var fyrst prentuð árið 1666 og öðlaðist fljótt algjöra sérstöðu í trúar- og menningarlífi þjóðarinnar. Kynslóðir Íslendinga kunnu sálmana meira og minna utan að og þeir voru lesnir og sungnir í kirkjum og á heimilum um allt land á föstunni. Engin bók hefur oftar verið prentuð á Íslandi og fá listaverk hafa markað jafn djúp spor í þjóðarsálina.

Halldór Hauksson hefur flutt Passíusálmana í heild opinberlega á hverju ári síðan 2014. Hann segir: „Það gefur mér afar mikið að lesa þessa sálma á föstunni og ég veit að það á við um mjög marga. Stundum spyr ég mig hvernig á því standi að trúarlegur kveðskapur frá 17. öld skuli enn eiga svona mikinn hljómgrunn meðal Íslendinga. Ég held að svarið sé að þrátt fyrir að heimsmynd og lífsvenjur breytist í aldanna rás þá er kjarninn í mannlegri tilveru alltaf sá sami. Fáir hafa túlkað og tjáð sorg og kvíða á jafn djúpsæjan og persónulegan hátt á íslenska tungu og Hallgrímur, en í Passíusálmunum er sömuleiðis að finna ótal óviðjanleg tilbrigði við stefin ást og þakklæti og hina eilífu von um fagra framtíð.“

Hugmyndin með lestrinum í Hörpu er sú að bjóða nú upp á nýjung í lifandi flutningi Passíusálmanna sem þjóðin þekkir svo vel og taka þá inn í nýtt umhverfi. Lögð er áhersla á óþvingað flæði í Hörpuhorni þannig að gestir geti komið og farið að vild og tónlistaratriði verða nokkrum sinnum milli lestra yfir daginn.

Veitingastaðurinn Hnoss á jarðhæð Hörpu verður opinn og geta gestir fengið sér hressingu í tengslum við heimsóknina í Hörpu.

Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir!

HEILDARLESTUR PASSÍUSÁLMA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR í HÖRPU