Fimmtudaginn 16. júlí heldur Guðný Einarsdóttir orgeltónleika í Hallgrímskirkju, en tónleikarnir eru hluti af Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju 2015. Á efnisskrá tónleikanna eru Magnificat eftir Matthias Weckmann, Prélude, fugue et variation eftir César Franck og Tokkata eftir Jón Nordal.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 á hádegi og almennt miðaverð er 2000 kr. en frítt er fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju á tónleikana.