26 manna ungmennakór frá Portsmouth Cathedral í Hallgrímskirkju um helgina

JURGA OG DIANA ENCIENÉ
GESTIR FRÁ LITHÁEN- hin margverðlaunaða söngkona JURGA ásamt DIANA ENCIENÉ orgelleikara 11. febrúar 2019 kl. 20
31/01/2019
Orgeltónlist með Mótettukór Hallgrímskirkju
Rómantísk og tignarleg kór- og orgeltónlist með Mótettukór Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. mars 2019 kl. 17
07/03/2019

26 manna ungmennakór frá Portsmouth Cathedral í Hallgrímskirkju um helgina

Cantate, ungmennakór frá Portsmouth Cathedral

TÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU

Laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00

Cantate, ungmennakór frá Portsmouth Cathedral, sem fræg er fyrir glæsilegt tónlistarstarf.

Stjórnandi: David Price, Orgel: Sachin Gunga

Cantate, ungmennakór frá Portsmouth CathedralAðgangseyrir 2.500 kr. Miðasala við innganginn og á midi.is

Æskukórinn Cantate er einn af þremur kórum við Dómkirkjuna í Portsmouth á Bretlandi. Kórinn var stofnaður árið 2006 og í honum eru 26 kórfélagar á unglingsaldri.

Tónlistarlíf við dómkirkjuna í Portsmouth er sérlega glæsilegt og hafa kórar kirkjunnar stórt hlutverk í helgihaldi hennar auk þess að halda tónleika. 

Æskukórinn Cantate hefur sungið bæði í Westminster Abbey, The Royal Albert Hall og komið fram í breska útvarpinu BBC. Kórinn hefur ferðast víða um Evrópu en þetta er fyrsta tónleikaferðin þeirra til Íslands. Á efnisskrá þeirra er bresk tónlist þekktra tónskálda úr samtíma og frá fyrri öldum og fylgir tónlistin tímabilum kirkjuársins.

www.portsmouthcathedral.org.uk

David Price, stjórnandi kórsins ferðaðist til Íslands sumarið 2016 og varð svo heillaður af landinu að hann hóf strax undirbúning að tónleikaferðinni. 

Kórinn heldur tónleika í Hallgrímskirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14 og kemur einnig fram í messu í Hallgrímskirkju sunnudaginn 24. feb. kl. 11, áður en hann heldur heim á ný. 

Aðgangseyrir að tónleikunum er 2.500 kr. og miðasala í kirkjunni 1 klst. fyrir tónleikana og á midi.is.

 Kynningarskjal