
Aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju í Háuloftum Hörpu miðvikudaginn 26. maí nk. kl. 17
12/05/2021
Listvinafélagið breytir um nafn og flytur úr Hallgrímskirkju- fréttir frá aðalfundi 26. maí sl.
09/06/2021LAUGARDAGINN 29. MAÍ 2021 KL. 17
LANGHOLTSKIRKJU REYKJAVÍK
STJÓRNANDI: HÖRÐUR ÁSKELSSON
Fluttar verða glæsilegar 5-8 radda mótettur og sálmavers eftir J.S. BACH og H. SCHÜTZ, útsetningar á Hallgrímssálmum eftir JÓN HLÖÐVER ÁSKELSSON og SMÁRA ÓLASON og orgelverk eftir J.S.BACH.
Mótettukórinn, sem áður starfaði við Hallgrímskirkju í Reykjavík, flytur nokkrar perlur kórtónbókmenntanna í nýju umhverfi, en mótettur eftir Bach og Schütz eru mjög krefjandi og meðal uppáhaldsverka kórsins. Auk þess syngur kórinn bænir Hallgríms Péturssonar sem alltaf hafa verið á verkefnalista kórsins og flytur þannig með sér áratuga langa tengingu kórsinsvið Passíusálmaskáldið Hallgrím Pétursson. Lára Bryndís Eggertsdóttir leikur einleik á hið glæsilega Noack-barokkorgel Langholtskirkju, sem hæfir orgeltónlist Bach einkar vel.
Efnisskrá:
- Ég byrja reisu mín, sálmur ísl. þjóðlag úts. Smári Ólason
- Víst ertu Jesú kóngur klár, ísl. þjóðlag úts. Jón Hlöðver Áskelsson
- J.S. Bach: Der Geist hilft unser Schwachheit auf BWV 226, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra
- Heinrich Schütz: Also hat Gott die Welt geliebt SWV 380, mótetta fyrir 5 raddir
- J.S. Bach: Dýrð sé Guði í hæstu hæðum BWV 30/6, sálmavers
- Heinrich Schütz: Die mit Tränen säen SWW 378, mótetta fyrir 5 raddir
- J.S. Bach: Flæðið, þér tár BWV 400, sálmavers, einsöngvari: Halldís Ólafsdóttir
- Heinrich Schütz: Die Himmel erzählen SWW 386, mótetta fyrir 5 raddir
- J.S. Bach: Oss minni sérhver morgunn á BWV 376, sálmavers
- J.S. Bach: Orgelverk
- J.S. Bach: Singet dem Herrn ein neues Lied BWV 225, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra
FLYTJENDUR:
Mótettukórinn
Lára Bryndís Eggertsdóttir orgel
Sigurður Halldórsson barokkselló
Richard Korn violone
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Miðaverð: 3.900 ISK
LISTVINAFELAG.IS- MOTETTUKOR.IS


