Þýsku djasstónlistarmennirnir Markus Burger og Jan von Klewitz „Spiritual Standards“ halda jólatónleika á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 17. desember 2015 klukkan 20:00 í boði þýska sendiherrans á Íslandi. Þeir kynna þýsk jólalög í nýrri útgáfu, þar á meðal eftir Georg Friedrich Händel og Martin Luther, þar sem þessi þekktu verk fá „djassaðan“ tón í samleik píanós og saxófóns. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju, en með þessum tónleikum styrkir þýska sendiráðið starfsemi Landsbjargar.