100 barna kór og hljómsveit flytja nýja kirkjusöngva með sveiflu. Mikil stemmning og sveifla ríkir á þessum tónleikum og fyllist kirkjan ávallt af glöðum tónleikagestum á öllum aldri. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Margréti Bóasdóttur, verkefnastjóra kirkjutónlistar á Biskupsstofu. Stjórnandi: Tómas Guðni Eggertsson, organisti Seljakirkju.
Ókeypis aðgangur.