Enn heldur hið ágæta samstarf milli Listaháskólans og Listvinafélagsins áfram. Úrval söng- og hljóðfæranemenda Listaháskóla Íslands flytur sem fyrr fjölbreytta tónlist og einnig verða flutt ný verk nemenda tónsmíðadeildar sem samin eru með midibúnað Klaisorgelsins í huga. Upplagt tækifæri til að njóta hæfileika komandi kynslóðar listafólks.
Ókeypis aðgangur.