25. apríl laugardagur
14.00 Listaháskólinn í Hallgrímskirkju II
Nemendur í kirkjutónlistar- og söngdeildum flytja fjölbreytta tónlist, m.a. ný verk nemenda tónsmíðadeildar, sem hugsanlega eru samin með midi-búnað Klais-orgelsins í huga.
„Listvinafélag Hallgrímskirkju og tónlistardeild Listaháskóla Íslands hafa gert með sér samkomulag um að tónlistardeildin skipuleggi tvenna tónleika á vorönn 2015. Markmiðið með þessu samstarfi er að kynna nemendum skólans fyrir töfrum Klais orgelsins og rými kirkjunnar til tónlistarflutnings og á sama tíma gefa listvinum kirkjunnar tækifæri til að heyra hvað hæfileikaríkir nemendur tónlistardeildar hafa fram að færa.“
Ókeypis aðgangur.