28. febrúar laugardagur
16.00 Listaháskólinn í Hallgrímskirkju I
Nemendur í kirkjutónlistar- og söngdeildum flytja fjölbreytta tónlist.
Á þessum tónleikum koma fram orgel- og söngnemendur Listaháskóla Íslands.
„Listvinafélag Hallgrímskirkju og tónlistardeild Listaháskóla Íslands hafa gert með sér samkomulag um að tónlistardeildin skipuleggi tvenna tónleika á vorönn 2015. Markmiðið með þessu samstarfi er að kynna nemendum skólans fyrir töfrum Klais orgelsins og rými kirkjunnar til tónlistarflutnings og á sama tíma gefa listvinum kirkjunnar tækifæri til að heyra hvað hæfileikaríkir nemendur tónlistardeildar hafa fram að færa.“
Ókeypis aðgangur.