Aðrir hádegistónleikar Schola cantorum á aðventunni með áherslu á fagra aðventu- og jólatónlist. Upplagt tækifæri til að koma við í Hallgrímskirkju í hádeginu og eiga stutta, hátíðlega stund þegar jólin nálgast óðum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Aðgangseyrir er kr. 2500. Listvinir fá 50% afslátt.