JÓLATÓNLEIKAR MÓTETTUKÓRS HALLGRÍMSKIRKJU
með ELMARI GILBERTSSYNI ÓPERUSÖNGVARA
“O MAGNUM MYSTERIUM”
9. desember laugardagur kl. 17
10. desember sunnudagur kl. 17
Flytjendur:
Mótettukór Hallgrímskirkju, Elmar Gilbertsson óperusöngvari og Björn Steinar Sólbergsson orgel
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Á efnisskránni eru þekktir jólasálmar, íslenskar og erlendar jólaperlur, “Ó helga nótt” o.fl.
Jólastemmning eins og best verður á kosið í fagurlega skreyttri kirkjunni!
Mótettukór Hallgrímskirkju, sem hlotið hefur margvíslegar viðurkenningar fyrir vandaðan og fagran söng sinn og hlaut m.a. þrenn gullverðlaun í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni 2014 hefur um árabil glatt tónleikagesti sína með hrífandi jólatónleikum á aðventunni.
Í ár verður einstaklega hátíðlegur og hugljúfur bragur á tónleikunum en flutt verða sígild jólaverk eftir Adam, Eccard, Lauridsen, Poulenc, Victoria, Whitacre o.fl.
Einsöngvari er Elmar Gilbertsson tenór, sem var valinn söngvari ársins í sígildri tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á þessu ári.
Aðgangseyrir: 5.900 / afsláttarverð f eldri borgara 4.900 kr., 3000 kr. fyrir nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.