HÁTÍÐARMESSA Á FYRSTA SUNNUDEGI Í AÐVENTU
Hátíðarmessa á fyrsta sunnudegi í aðventu við upphaf nýs kirkjuárs.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Hrífandi aðventutónlist flutt og kveikt á fyrsta aðventukertinu. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Barnastarf. 37. starfsár Listvinafélags Hallgrímskirkju hefst með hátíðarmessunni.