Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel og pákur. Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari og Eggert Pálsson pákuleikari flytja glæsileg hátíðarverk m.a. eftir Vivaldi, Purchell, Bach og Albinoni. Áramótastemningin byrjar með hátíðarhljómum þeirra félaga, enda njóta þessir tónleikar gríðarlega mikilla vinsælda.
Aðgangseyrir er kr. 3500. Listvinir fá 50% afslátt.