Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2019
Laugardagur 3. ágúst kl. 12.00 – 12.30
Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti í Hjallakirkju Kópavogi
Leikur verk eftir Johann Sebastian Bach og Elsa Barraine.
Miðaverð 2500 kr
Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2019
Sunnudagur 4. ágúst kl. 17.00 – 18.00
Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti í Hjallakirkju Kópavogi
Á efnisskrá eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Elsa Barraine, Vivaldi, Gaston Litaize og Jean Guillou.
Miðaverð 3000 kr
Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar.
Lára Bryndís flutti á síðasta ári aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf.
Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum. Frá því í september 2018 hefur Lára Bryndís verið organisti Hjallakirkju í Kópavogi auk þess að kenna við Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Johann Sebastian Bach 1685-1750
Wir Danken Dir, Gott BWV 29: Sinfonia Umritun/transcription A. Guilmant 1837-1911
Elsa Barraine 1910-1999
Deuxième Prélude et Fugue (1929)
Johann Sebastian Bach 1685-1750
Praeludium & Fuga in G Major BWV 541
Johann Sebastian Bach 1685-1750
Praeludium & Fuga in G Major BWV 541
Elsa Barraine 1910-1999
Deuxième Prélude et Fugue (1929)
Johann Sebastian Bach 1685-1750 / Antonio Vivaldi 1678-1741
Concerto in g minor BWV 975 Umritun/transcription Elena Barshai (2012) Allegro
Largo Giga
Gaston Litaize 1909-1991
From Douze pièces pour grande orgue: Prélude
Scherzo
Jean Guillou 1930-2019
Ballade Ossianique No. 1 Temora (1966/2005)