AÐALFUNDUR LISTVINAFÉLAGSINS Í REYKJAVÍK verður haldinn MIÐVIKUDAGINN 28. MAÍ KL. 17 í SAFNAÐARHEIMILI NESKIRKJU VIÐ HAGATORG.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf en einnig er þetta kærkomið tækifæri til að listvinir hittist og ræði málefni félagsins og horfi fram til næstu ára með stjórn Listvinafélagsins.
Boðið verður upp á glæsilegar veitingar og antikbollastell Listvinafélagsins munu skapa fallega og hlýlega stemmningu
Reiknað er með að fundurinn standi í um 1,5 klst. og myndi stjórn Listvinafélagsins gleðjast yfir að sjá ykkur sem flest.
Með kærum og hlýjum sumarkveðjum-
Inga Rós Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri
Stjórn Listvinafélagsins í Reykjavík:
Ágúst Ingi Ágústsson formaður
Hörður Áskelsson listrænn stjórnandi
Ragnheiður Þórdís Gylfadóttir
Margrét Bóasdóttir
Alexandra Kjeld
Benedikt Ingólfsson
Halldór Hauksson
Rósa Gísladóttir
Halldís Ólafsdóttir
Listvinafélagið í Reykjavík
listvinafelag.is
Mynd: neskirkja.is