Kammerkórinn Schola Cantorum hefur verið mikilvirkur flytjandi tónlistar undir stjórn Harðar Áskelssonar í tæp 30 ár. Kórinn hefur á þessum árum komið víða við en látið hvað mest að sér kveða í flutningi barokktónlistar og tónlistar frá 20. og 21. öld.
Hópurinn hefur frumflutt verk eftir fjölda tónskálda og lagt áherslu á reglulegt tónleikahald og hljóðritanir. Schola Cantorum hefur unnið með fjölmörgum listamönnum og hópum við tónleikahald og upptökur fyrir geislaplötur, sjónvarp og kvikmyndir. Má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Reykjavík, Björk, Sigur Rós, Wildbirds & Peacedrums, Hjaltalín, Tim Hecker, Ben Frost, Jóhann Jóhannsson og Kjartan Sveinsson. Þá söng kórinn tónlist Bears McCreary á upptökum fyrir tölvuleikinn God of War sem Sony gaf út árið 2018 og hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir.
Schola Cantorum heldur reglulega tónleika erlendis og hefur hópurinn komið fram á virtum og vel sóttum tónlistarhátíðum, svo sem á Reykjavík Festival í boði Fílharmóníuhljómsveitar Los Angeles-borgar í Walt Disney Concert Hall árið 2017 og á tónlistarhátíðinni Culturescapes í Sviss árið 2015.
Kórinn hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og unnið til verðlauna í keppnum í Frakklandi og á Ítalíu. Þá var kórinn tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2007 og var valinn tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið 2006.
Schola Cantorum var útnefndur tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar tónlistar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2017. Schola Cantorum hefur sent frá sér marga geisladiska. Tveir diskar með titlinum Meditatio hafa komið út á vegum BIS og hlotið afar lofsamlega umfjöllun víða um heim. Söngur Schola Cantorum hljómar jafnframt á fleiri diskum frá BIS í heildarútgáfu fyrirtækisins á hljómsveitar- og kórverkum Jóns Leifs.
Schola Cantorum tók þátt í frumflutningi óratóríunnar The Gospel of Mary eftir Huga Guðmundsson undir stjórn Harðar Áskelssonar. Verkið var frumflutt í Hallgrímskirkju á vegum Listvinafélagsins á Listahátíð í Reykjavík í júní 2022 og var einnig flutt sama ár á KLANG tónlistarhátíðinni í Kaupmannahöfn og Alþjóðlegu kirkjutónlistarhátíðinni í Osló og hljóðritað.
Tvennir síðustu stóru tónleikar Listvinafélagsins sem Schola Cantorum kom fram á var rómaður flutningur á Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi í desember 2023 í Eldborg Hörpu undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar og flutningur á Jólaóratóríunni eftir J.S. Bach ásamt Mótettukórnum og Alþjóðlegu barokksveitinni í Reykjavík á glæsilegum lokatónleikum Listvinafélagsins í Eldborg Hörpu 29. des. 2024 undir stjórn Benedikts Kristjánssonar en hann söng jafnframt tenórhlutverkið.
Heimasíða: www.scholacantorum.is

