BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Listvinafélagið í Reykjavík - ECPv6.15.11//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://listvinafelag.is
X-WR-CALDESC:Events for Listvinafélagið í Reykjavík
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170810
DTEND;VALUE=DATE:20170811
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170807T230648Z
LAST-MODIFIED:20170807T230648Z
UID:3705-1502323200-1502409599@listvinafelag.is
SUMMARY:Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson á Alþjóðlegu orgelsumri
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 10. ágúst kl.12 verður einstakir tónleikar á Alþjóðlegu orgelsumri með fjölbreyttri efnisskrá og frumlegri hljóðfærasamsetingu. Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti munu flytja saman tónlist eftir G.F. Handel\, Z. Kodály\, Karólínu Eikríksdóttur og M. Bruch. Þórir og Eyþór munu einnig frumflytja spennandi verk eftir Gísla Jóhann Grétarsson. \nKontrabassaleikarinn Þórir Jóhannsson lauk Postgraduate Diploma frá the Royal Northern College of Music í Manchester. Eftir nokkurra ára dvöl í Danmörku þar sem Þórir var lausráðinn við nokkrar helstu hljómsveitir beggja vegna Eyrarsundsins flutti hann aftur til Íslands haustið 2000 og er nú fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann er kennari í Tónlistarskóla Kópavogs og er virkur kammertónlistarmaður og hefur til dæmis reglulega komið fram með kvintett á tónleikum hins virta Kammermúsikklúbbs. Þórir hefur frumflutt ýmis verk fyrir kontrabassa\, ýmist einan\, með píanói eða konsert með kammersveit. Rhapsodia per Contrabasso et Piano eftir Þórð Magnússon frumflutti hann 2011.\n2016 leiðbeindi Þórir í fyrsta sinn í Alþjóðlegu Tónlistarakademíu Hörpu. \nEyþór Ingi Jónsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1998\, undir leiðsögn Harðar Áskelssonar\, Fríðu Lárusdóttur o.fl. Því næst lauk hann 7 ára námi við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð\, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild. Aðalorgelkennari hans var prof. Hans-Ola Ericsson. Auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn. Kennari hans var prof. Erik Westberg. \nEyþór starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju. Þá er hann stofnandi og stjórnandi kammerkórsins Hymnodia. Eyþór hefur einbeitt sér bæði að flutningi tónlistar frá 17. öld og hins vegar nútímatónlistar og spuna\, bæði fyrir orgel og kór. Hann hefur pantað og/eða frumflutt tugi tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld. Eyþór hefur komið fram á fjölda tónleika\, bæði einn við orgelið eða með hljóðfæraleikurum eða söngvurum. Hann er einn af forkólfum Barokksmiðju Hólastiftis. Eyþór var bæjarlistamaður Akureyrar 2011–2012.
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/thorir-johannsson-og-eythor-ingi-jonsson-a-althjodlegu-orgelsumri/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170812
DTEND;VALUE=DATE:20170813
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170811T102148Z
LAST-MODIFIED:20170811T102148Z
UID:3714-1502496000-1502582399@listvinafelag.is
SUMMARY:Ungi orgelvirtúós Thomas Sheehan
DESCRIPTION:Thomas Sheehan – einn efnislegasti ungi orgelvirtúós Bandaríkjanna á Alþjóðlegu orgelsumri um helgina\n\n\n\n\n12. ÁGÚST 2017 KL. 12.00 \n13. ÁGÚST 2017 KL. 17.00  \nTHOMAS SHEEHAN \nORGANISTI MINNINGARKIRKJUNNAR VIÐ HARWARD HÁSKÓLA\n( Harvard Memorial Church) Í BOSTON \nUm helgina býður Alþjóðlegt orgelsumar upp á tvenna tónleika með einum efnilegasta unga orgelleikara Bandaríkjanna\, Thomas Sheehan\, sem gegnir nú stöðu við Memorial Church við Harvard háskóla. \nSheehan er mikill orgelvirtútós og mun eingöngu leika verk eftir bandarísk tónskáld en það er hans hugsjón að kynna bandaríska tónlist víða um heim. Efnisskráin er afar aðgengileg og fjölbreytt og gætir þar líka m.a. áhrifa frá jazzi sem á einkar vel við núna þegar Jazzhátíð í Reykjavík stendur yfir! \nThomas Sheehan er organisti og kórstjóri við Minningarkirkjuna við Harvard háskóla auk þess að vera meðleikari Harvard Glee Club kórsins.\nÁður en hann tók við þessu starfi var hann tónlistarmaður við Saint Mark kirkjuna í Fíladelfíu í Pennsylvaníu og Trinity biskupakirkjuna í Princeton í New Jersey. \nThomas útskrifaðist frá hinum heimsþekkta Curtis tónlistarháskóla í Philadelphia með lokapróf bæði í orgelleik og á sembal. Hann lauk bæði BMus og MMus frá Westminster Choir College í Princeton undir handleiðslu Ken Cowan og vinnur núna að doktorsverkefni sínu á sviði tónlistar við Boston Háskóla undir leiðsögn Peter Sykes. \n2009 hlaut hann fyrstu verðlaun bæði í bandarísku Arthur Poister keppninni í orgelleik og Quimby svæðiskeppninni fyrir miðsvæði Atlantshafsstrandarinnar.\nThomas veittist sá heiður að vera boðið að halda tónleika á Landsmóti American Guild of Organists í höfuðborginni Washington\, DC árið 2010. Hann hefur haldið fjölda tónleika um Bandaríkin og í Evrópu. \nÞetta er næst síðasta tónleikahelgin á Alþjóðlegu orgelsumri sem nú er haldið í 25. sinn og hafa tónleikarnir verið mjög vel sóttir og eru erlendir ferðamenn þar í miklum meirihluta þakklátra tónleikagesta. \nMiðasala er við innganginn klst. fyrir tónleika og á midi.is.\nMiðaverð er 2000 kr á hádegistónleikana og 2.500 kr á sunnudagstónleikana.\nFrítt er fyrir börn og listvini.
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/ungi-orgelvirtuos-thomas-sheehan/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170813
DTEND;VALUE=DATE:20170814
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170811T103633Z
LAST-MODIFIED:20170811T103633Z
UID:3721-1502582400-1502668799@listvinafelag.is
SUMMARY:Ungi orgelvirtúós Thomas Sheehan
DESCRIPTION:12. ÁGÚST 2017 KL. 12.00 \n13. ÁGÚST 2017 KL. 17.00  \nTHOMAS SHEEHAN \nORGANISTI MINNINGARKIRKJUNNAR VIÐ HARWARD HÁSKÓLA\n( Harvard Memorial Church) Í BOSTON \nUm helgina býður Alþjóðlegt orgelsumar upp á tvenna tónleika með einum efnilegasta unga orgelleikara Bandaríkjanna\, Thomas Sheehan\, sem gegnir nú stöðu við Memorial Church við Harvard háskóla. \nSheehan er mikill orgelvirtútós og mun eingöngu leika verk eftir bandarísk tónskáld en það er hans hugsjón að kynna bandaríska tónlist víða um heim. Efnisskráin er afar aðgengileg og fjölbreytt og gætir þar líka m.a. áhrifa frá jazzi sem á einkar vel við núna þegar Jazzhátíð í Reykjavík stendur yfir! \nThomas Sheehan er organisti og kórstjóri við Minningarkirkjuna við Harvard háskóla auk þess að vera meðleikari Harvard Glee Club kórsins.\nÁður en hann tók við þessu starfi var hann tónlistarmaður við Saint Mark kirkjuna í Fíladelfíu í Pennsylvaníu og Trinity biskupakirkjuna í Princeton í New Jersey. \nThomas útskrifaðist frá hinum heimsþekkta Curtis tónlistarháskóla í Philadelphia með lokapróf bæði í orgelleik og á sembal. Hann lauk bæði BMus og MMus frá Westminster Choir College í Princeton undir handleiðslu Ken Cowan og vinnur núna að doktorsverkefni sínu á sviði tónlistar við Boston Háskóla undir leiðsögn Peter Sykes. \n2009 hlaut hann fyrstu verðlaun bæði í bandarísku Arthur Poister keppninni í orgelleik og Quimby svæðiskeppninni fyrir miðsvæði Atlantshafsstrandarinnar.\nThomas veittist sá heiður að vera boðið að halda tónleika á Landsmóti American Guild of Organists í höfuðborginni Washington\, DC árið 2010. Hann hefur haldið fjölda tónleika um Bandaríkin og í Evrópu. \nÞetta er næst síðasta tónleikahelgin á Alþjóðlegu orgelsumri sem nú er haldið í 25. sinn og hafa tónleikarnir verið mjög vel sóttir og eru erlendir ferðamenn þar í miklum meirihluta þakklátra tónleikagesta. \nMiðasala er við innganginn klst. fyrir tónleika og á midi.is.\nMiðaverð er 2000 kr á hádegistónleikana og 2.500 kr á sunnudagstónleikana.\nFrítt er fyrir börn og listvini.
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/ungi-orgelvirtuos-thomas-sheehan-2/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170819
DTEND;VALUE=DATE:20170820
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170815T163150Z
LAST-MODIFIED:20170815T163150Z
UID:3740-1503100800-1503187199@listvinafelag.is
SUMMARY:Menningarnótt í Reykjavík 2017
DESCRIPTION:Menningarnótt í Reykjavík 2017 \nSálmafoss í Hallgrímskirkju 19. ágúst klukkan 15.00-21.00 \nHallgrímskirkja iðar af lífi alla daga og á Sálmafossi á Menningarnótt heimsækja þúsundir gesta kirkjuna til að upplifa Klaisorgelið og hrífandi og fjölbreytta tónlist! Á heila tímanum sameinast allir í söng og gleði með kór og orgelinu. Samfelld dagskrá kl. 15-21 þ.s. 6 nýir sálmar eftir 6 íslenska organista og ljóðskáld verða frumfluttir\, 5 kórar koma fram\, m.a. Mótettukórinn og Schola cantorum og Klaisorgelið hljómar eitt og með gítar\, trompet og selló! \nÓkeypis aðgangur og allir velkomnir!  \nKynnar eru dr. Sigurður Árni Þórðarson sóknarprestur Hallgrímskirkju\, Margrét Bóasdóttir söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Inga Rós Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju. Listrænn stjórnandi og ábyrgðarmaður Sálmafoss er Hörður Áskelsson kantor Hallgrímskirkju. \n15.00 Sex nýir sálmar frumfluttir – allir syngi með! \nTónmenntasjóður kirkjunnar fékk sex organista til að velja sér skáld til samstarfs um gerð nýs sálms. Afraksturinn eru sex nýir sálmar\, sem bætast nú í flokk sálma sem Tónmenntasjóðurinn hefur pantað hjá skáldum og tónskáldum á undanförnum árum. Mótettukór Hallgrímskirkju frumflytur sálmana\, kirkjugestum er boðið að syngja með. \nSálmarnir eru: \n\nÉg finn þinn andaeftir sr. Hildi Eir Bolladóttur og Eyþór Inga Jónsson organista Akureyrarkirkju\nÍ birtu vonarinnar eftir sr. Þórhall Heimisson og Guðnýju Einarsdóttur organista Hjallakirkju\nÍ svörtum himingeimieftir sr. Davíð Þór Jónsson og Arngerði Maríu Árnadóttur organista Laugarneskirkju\nJesús mér leggur litla sögu á hjartaeftir sr. Sigurð Jónsson og Magnús Ragnarsson organista Langholtskirkju\nÞú ert þar eftir Vilborgu Davíðsdóttur og Láru Bryndísi Eggertsdóttur organista Horsens í Danmörku\nVertu hans kraftaverkeftir Friðrik Erlingsson og Steingrím Þórhallsson organista Neskirkju\n\n15.30 Mótettukór Hallgrímskirkju syngur sálmaútsetningar og mótettur undir stjórn Harðar Áskelssonar \n16.00 Sálmasöngur -allir syngi með! \nSchola cantorum leiðir sönginn. \n16.10 “Dagur er nærri” Schola cantorum syngur hugljúfa kórtónlist undir stjórn Harðar Áskelssonar \n16.30 Björn Steinar Sólbergsson flytur fjölbreytta orgeltónlist. \n17.00 Sálmasöngur -allir syngi með! \nSöngsveitin Fílharmónía leiðir sönginn. \n17.10 Söngsveitin Fílharmónía flytur fjölbreytta kórtónlist undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar \n17.45 Vestfossen Blandakor frá Noregi undir stjórn Gróu Hreinsdóttur flytur norska kórtónlist \n18.00 Sálmasöngur -allir syngi með! \nKór Neskirkju í Reykjavík leiðir sönginn \n18.10 Kór Neskirkju ásamt stjórnanda sínum Steingrími Þórhallssyni organista Neskirkju flytur fjölbreytta kór- og orgeltónlist. \n19.00 Sálmasöngur -allir syngi með! \nLára Bryndís Eggertsdóttir organisti leiðir sönginn. \n19.10 Lára Bryndís Eggertsdóttir flytur orgeltónlist úr ýmsum \n19.30 ORGA\, íslenskt danskt gítar- og orgeldúó flytur útsetningar og eigin tónlist. \nDúóið skipa Þór Arnarsson gítar og Thunbo Pedersen orgel \n20.00 Sálmasöngur -allir syngi með! \nBjörn Steinar Sólbergsson organisti leiðir sönginn \n20.10 Orgel\, trompet\, og selló \nBaldvin Oddsson trompetleikari\, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og organistarnir Steinar Logi Helgason\, Björn Steinar Sólbergsson og Hörður Áskelsson ljúka Sálmafossi með sindrandi tónum.
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/menningarnott-i-reykjavik-2017/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170825
DTEND;VALUE=DATE:20170826
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170824T123634Z
LAST-MODIFIED:20170824T123634Z
UID:3763-1503619200-1503705599@listvinafelag.is
SUMMARY:Alpha & Omega sýning
DESCRIPTION:Ný sýning á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju með verkum sænsku listamannanna Christine Ödlund og Fredrik Söderberg\, Alpha & Omega\, verður opnuð í Hallgrímskirkju 25. ágúst 2017 kl. 18. Listvinafélaginu er mikill heiður af því að fá þessa virtu sænsku listamenn til að sýna í forkirkjunni\, en þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir þau eru sýnd á Íslandi.\nDr. Sigurður Árni Þórðarson opnar sýninguna og Rósa Gísladóttir myndlistarfulltrúi Listvinafélagsins kynnir myndlistarmennina\, sem segja einnig stuttlega frá verkum sínum. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir velkomnir! \nVið vinnslu verkanna fimm sem Fredrik Söderberg sýnir í Hallgrímskirkju studdist hann við handrit að Opinberunarbók Jóhannesar sem munkurinn Beatus frá Liébana (730-785) ritaði og var síðar skrifað upp í Saint Sever klaustrinu í Frakklandi\, og þaðan kemur heitið\, Alpha et Omega. Í verkunum leitast Söderberg við að tjá hinar frumstæðu myndir handritsins. Samhverfan sem birtist í fornum handritslýsingunum er hrífandi í öllum sínum einfaldleika. \nVerk Christine Ödlund snúast um hæfileikann að hefja sig yfir þá múra sem hindra tjáskipti fólks og jurta\, og mörkin milli hins sýnilega og ósýnilega. \nÞrjú verkanna sem eru til sýnis voru gerð á djúpsvörtum bakgrunni\, næstum óhlutbundin mótíf sem unnin voru með náttúrlegum litarefnum sem saman mynda samþjappaða líffræðilega samblöndun. Klippimyndin Exploding Star blandar saman mörgum teikningum sem lýsa því sem aldrei verður skilið til hlítar\, undur alheimsins sem eiga sér stað utan andrúmsloftsins.\nChristine Ödlund hefur verið virk í sýningarhaldi á alþjóða vettvangi og hefur meðal annars tekið þátt í sýningum á borð við Momentum Nordic Biennal of Contemporary Art í Moss í Noregi og Marrakesh-tvíæringnum í Marokkó. \nVerk Fredrik Söderberg hafa meðal annars verið sýnd í Historiska Museet í Stokkhólmi\, Galleri Riis í Osló\, í Sænsku stofnuninni í París og tók þátt í Magasin III í Stokkhólmi.\nÞau búa bæði og starfa í Stokkhólmi. \nSýningin opnar föstudaginn 25. ágúst 2017 kl. 18 og að venju verða léttar veitingar í boði. Allir eru hjartanlega velkomnir! \nSýningarstjóri er Rósa Gísladóttir s. 864 0407
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/alpha-omega-syning/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170827
DTEND;VALUE=DATE:20170828
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20161215T182546Z
LAST-MODIFIED:20161215T182546Z
UID:3550-1503792000-1503878399@listvinafelag.is
SUMMARY:a&o
DESCRIPTION:27. ágúst 2017 sunnudagur kl. 12.15 \na&o \nOpnun haustsýningar í forkirkjunni í messulok. \nSænsku myndlistarmennirnir Christine Ödlund og Fredrik Söderholm eru gestir Listvinafélagsins á afmælisárinu og sýna trúarleg verk í forkirkjunni. Í verkum Christine gætir áhrifa frá guðspeki (theosophy)\, samskynjun\, (synaesthesia) og náttúruvísindum\, en í verkum Frederiks er myndefnið oft trúarlegs eðlis. Listamennirnir vinna m.a. með teikningar\, málverk\, vatnsliti og blaðgull\, en Christine er einnig menntaður raftónlistarmaður. Þau hafa bæði sýnt víða um heim og eiga m.a. verk í þekktum sænskum listasöfnum. \nSjá nánar www.fredriksoderberg.org\, www.christineodlund.se \nSýningin stendur til 22. október. \nSýningarstjóri er Rósa Gísladóttir. Ókeypis aðgangur-allir velkomnir!
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/ao/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20170830
DTEND;VALUE=DATE:20170831
DTSTAMP:20260516T214750
CREATED:20170829T125436Z
LAST-MODIFIED:20170829T125436Z
UID:3769-1504051200-1504137599@listvinafelag.is
SUMMARY:Síðustu hádegistónleikar Schola Cantorum í sumar
DESCRIPTION:Síðustu hádegistónleikar Schola Cantorum í sumar – Miðvikudaginn 30. ágúst 2017 kl. 12.00-12.30 \nKammerkórinn Schola cantorum hefur haldið vikulega hádegistónleika í Hallgrímskirkju á miðvikudögum í sumar við frábærar undirtektir tónleikagesta. Miðvikudaginn 30. ágúst er komið að elleftu og síðustu tónleikum kórsins í sumar og flytur kórinn fagrar\, íslenskar kórperlur í bland við uppáhaldsverk af verkefnaskrá kórsins\, eins og t.d. hið hrífandi Lux Aeterna: „O Nata Lux“ eftir Morten Lauridsen af geislaplötu sinni Meditatio\, sem hlotið hefur frábærar viðtökur um allan heim. \nThelma Hrönn Sigurdórsdóttir syngur einsöng í „Ave María“ eftir Sigvalda Kaldalóns við undirleik Harðar á Klais- orgelið og einnig flytur kórinn „Vökuró“ eftir Jórunni Viðar í nýrri útsetningu eftir Hafstein Þórólfsson og syngur Guðmundur Vignir Karlsson tenór einsönginn þar. Stjórnandi Schola cantorum er Hörður Áskelsson. \nAð tónleikunum loknum fögnum við vel heppnuðu tónleikasumri og er öllum tónleikagestunum boðið upp á kaffi og létta hressingu í suðursal Hallgrímskirkju\, en kaffispjallið eftir tónleikana í sumar hefur verið afar vinsælt. \nMiðaverð: 2.500 kr.\nMiðar fást í Hallgrímskirkju 1 klst fyrir tónleika og á midi.is \nLISTVINIR FÁ 50% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI VIÐ INNGANGINN \nKammerkórinn Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar hefur átt mikilli velgengni að fagna á árinu og hefur kórinn hlotið hástemmt lof fyrir flutning sinn bæði á tónleikum hér heima og erlendis og fyrir nýju geislaplötuna sína Meditatio. Einnig var kórinn útnefndur „Tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar“ á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars sl. \nÍ apríl sl. kom kórinn fram á listahátíðinni Reykjavik Festival í Los Angeles sem fór fram í Walt Disney Concert Hall.\nUmfjöllun erlendra blaðamanna um framgöngu Schola Cantorum á hátíðinni var mjög góð og í Wall Street Journal segir m.a.: \,\,sung by the festival’s great find\, the Schola cantorum Reykjavík\,… proved warm and precise every time they performed (five programs total) “ Í maí kom hópurinn svo fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og söng tveggja kóra Bach mótettu á sérstakri tónleikaröð þar sem markmiðið er meðal annars að skapa nánd við áhorfendur. Einnig söng Schola cantorum á upphafstónleikum Reykholtshátíðar í lok júlí sl.ásamt kammersveit\, þ.s. hann söng verk eftir J.S. Bach og Arvo Pärt undir stjórn Harðar Áskelssonar. \nHörður Áskelsson\, organisti og kantor í Hallgrímskirkju hefur stjórnað hópnum frá stofnun hans eða í rúm 20 ár. \nFrá fyrstu tíð hefur verið lögð áhersla á valinn mann í hverju rúmi og unnið ötullega að því að mynda áhrifaríkan samhljóm í gegnum sönginn sem oftast fer fram án undirleiks. Verkefnin hafa verið mjög fjölbreytt í gegnum tíðina og kórinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir fyrir flutning sinn\, nú síðast Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarflytjandi ársins 2016. \nKammerkórinn Schola cantorum hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn “Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars sl. og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi\, Svíþjóð\, Finnlandi\, Ítalíu\, Spáni\, Þýskalandi\, Frakklandi\, Japan\, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006\, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. \nKórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks\, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag)\, Björk\, Sigurrós o.fl. Kórinn hélt veglega upp á 20 ára afmæli sitt á sl. ári með fjölbreyttum tónleikum\, þ.s. kórinn frumflutti m.a. Requiem eftir Sigurð Sævarsson og flutti Jólaóratóríu J.S. Bach með Alþjóðlegu barokksveitinni í des. sl.\, og kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl sl.\, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times\, LA Times o.fl. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.  Á tónleikum sumarsins flytur Schola cantorum m.a. þekktar íslenskar kórperlur í bland við verk af nýjasta geisladiskinum\, MEDITATIO\, sem kom út hjá hinu virta sænska útgáfufyrirtæki BIS á síðasta ári og hefur hlotið afburða dóma í fagtímaritum um allan heim.
URL:https://listvinafelag.is/vidburdir/sidustu-hadegistonleikar-schola-cantorum-i-sumar/
END:VEVENT
END:VCALENDAR