Ave María Kaldalóns á morgun

James McVinnie
James McVinnie leikur á lokatónleikum Alþjóðlegs orgelsumars 2016 laugardaginn 21. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 22. ágúst kl. 17.
19/08/2016
Sumarið kvatt með söng – Lokatónleikar Schola cantorum á morgun
30/08/2016

Ave María Kaldalóns á morgun

Hin íðilfagra Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns verður eitt verkanna sem flutt verður í Hallgrímskirkju á hádegistónleikum Schola cantorum á morgun. Einsöngvari er Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.

Íslensk kórtónlist hefur fengið að óma í allt sumar í Hallgrímskirkju á miðvikudögum og hefur ekki síst heillað ferðamenn upp úr skónum, sem eru afar áhugasamir um að kynnast íslenskum tónlistararfi. Á dagskrá er blanda íslenskra þjóðlaga og nýrri tónsmíða, krydduð með verkum frá barokk- og endurreisnartíma eftir Händel og Byrd.

Tónleikarnir hefjast kl. 12. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2500.

Boðið er upp á kaffi og sætan bita eftir tónleikana.